433

Valur staðfestir kaup á Tuma frá Fylki

Mynd

Knattspyrnudeild Vals hefur gert þriggja ára samning við Tuma Fannar Gunnarsson og gildir hann út tímabilið 2029.

Tumi Fannar er 21 árs miðjumaður sem getur leyst margar stöður á vellinum. 

Hann er uppalinn hjá Breiðabliki en lék með Fylki í sumar, átti þar gott tímabil og sýndi að hann er klár í að taka næsta skref.

Halldór Árnason er að taka við þjálfun Vals og þekkir Tuma frá tíma þeirra saman í Breiðablik.