Helgi Fannar Sigurðsson og Hörður Snævar Jónsson fóru yfir sviðið í Íþróttavikunni á 433/DV.
Reuters birti áhugaverða grein á dögunum um gríðarlegar vinsældir Tottenham í Bandaríkjunum. Leikir liðsins eru gjarnan þeir sem fá mest áhorf vestanhafs.
„Ég var mjög hissa þegar ég sá þetta en þeir hafa verið með bandarískar tengingar og bandaríska leikmenn. Þá er Son Heung-Min mjög vinsæll í Bandaríkjunum, og þá hefur þetta samstarf við NFL með heimavöllinn virkað vel,“ sagði Helgi.
„Kaninn hefur væntanlega gaman að því að fara á þennan völl líka, þetta er flottasti völlurinn. Það er mikið lagt upp úr mat og drykk í Bandaríkjunum, engar raðir og skipulag,“ sagði Hörður.