Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari var að vonum sáttur með stórsigur á Króatíu á útivelli í fyrri leik liðanna í undanúrslitum umspilsins um sæti á HM í kvöld.
Ísland vann 0-4 og má segja að það sé formsatriði að tryggja sér sæti í úrslitum umspilsins í seinni leiknum á Laugardalsvelli á þriðjudagskvöldið.
„Þetta var heilt yfir góður leikur. Það kom kafli í seinni hálfleik sem var smá slappur, við vorum eitthvað að rembast, rjúka út úr stöðum og pressan óskipulögð. En um leið og við náðum tök á því fannst mér við stjórna leiknum,“ sagði Þorsteinn við RÚV eftir leik.
Varnarmaðurinn Arna Eiríksdóttir skoraði tvö mörk í dag, en hún er að stíga sín fyrstu skref með A-landsliðinu. Þess má geta að systir hennar, sóknarmaðurinn Hlín Eiríksdóttir, er einnig í liðinu. Hún skoraði eitt mark í leiknum.
„Hún á montréttinn í dag svo hún hlýtur að bauna aðeins á systur sína, sem er alltaf nær markinu en hún skorar samt fleiri,“ sagði Þorsteinn og hló.
Hann hvetur fólk til að mæta á seinni leikinn á Laugardalsvelli á þriðjudaginn.
„Við viljum bara að fólk mæti. Við gerum allt sem við getum til að sýna góðan leik. Við viljum klára þetta með sigri og góðum leik, halda áfram að þróast og þroskast sem lið.“
Nema eitthvað ótrúlegt gerist er Ísland svo á leið í tveggja leikja úrslitaeinvígi, væntanlega við Portúgal, um sæti á HM. Þeir leikir fara fram í kringum mánaðarmótin nóvember-desember.