Helgi Fannar Sigurðsson og Hörður Snævar Jónsson fóru yfir sviðið í Íþróttavikunni á 433/DV.
Jóhann Berg Guðmundsson tilkynnti á dögunum að skórnir væru komnir á hilluna.
Jóhann spilaði 102 A-landsleiki, var lykilmaður þegar Ísland fór á EM og HM og átti farsælan feril á Englandi um árabil.
„Þvílíkur ferill. Þetta er algjör goðsögn í landsliðinu og frábært að hann hafi náð 100 landsleikjum,“ sagði Helgi.
Hörður segir standa uppi frá ferli Jóhanns þegar hann skoraði þrennu í 4-4 jafntefli við Sviss þar ytra.
„Ég var á vellinum þar, það var geðveikt. Við vorum dauðir og grafnir en hann henti í einhverja flottustu þrennu sem maður hefur séð á fótboltavellinum.“