433

Sorg á Spáni: Ungur maður lést í bílslysi - Þekktir einstaklingar í hinni bifreiðinni

Mynd

Sira Martinez, dóttir Luis Enrique, knattspyrnustjóra Paris Saint-Germain, lenti í alvarlegu bílslysi á Spáni í gærkvöldi þar sem tvítugur mótorhjólamaður lést.

Slysið varð á þjóðvegi skammt frá Valencia þegar bíllinn sem Martinez var farþegi í lenti í árekstri við mótorhjól. Sjúkralið kom á vettvang en ekki tókst að bjarga lífi unga mannsins.

Mynd
Sira Martinez.

Martinez, sem er 26 ára gömul, slapp ómeidd úr slysinu. Undir stýri var 41 árs gamall Breti sem er þekktur knapi og hefur keppt í hestaíþróttum á alþjóðavettvangi.

Lögregla rannsakar nú slysið og er ökumaðurinn grunaður um að hafa brotið umferðarreglur.

Martinez er sjálf atvinnuknapi og var áður í sambandi með Ferran Torres, leikmanni PSG.