433

Segir þetta vera mestu áskorunina fyrir Arnar í starfi - „Það er búið að gefa okkur þetta 'blueprint'“

Mynd

Jóhann Berg Guðmundsson, sem tilkynnti í gær að hann hefði lagt knattspyrnuskóna á hilluna, er ekki sannfærður um þá leikaðferð sem Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, hefur innleitt hjá íslenska landsliðinu. Hann telur að kerfið sé flókið og að það geti tekið langan tíma fyrir leikmenn að tileinka sér það.

Ísland gerði markalaust jafntefli gegn Eistlandi í Þjóðadeildinni á dögunum og var frammistaða liðsins langt frá því að vera sannfærandi.

Jóhann ræddi leikinn í hlaðvarpinu Sjöunni. Fyrsti þáttur fór í loftið í gær þar sem Jóhann Berg mun í allan vetur segja sína skoðun

„Við vitum öll hvaða fótbolta Arnar vill spila. Það er þessi Pep Guardiola fótbolti, það er mikið af færslum,“ sagði Jóhann og benti á að liðið vantaði rétta leikmenn í ákveðnar stöður.

„Ef þú ætlar að spila þetta verður þú að hafa tvo alvöru kantmenn.“

Jóhann þekkir þessa leikaðferð vel frá tíma sínum hjá Burnley, þar sem Vincent Kompany innleiddi sambærilegt kerfi. Hann segir mikinn mun á því að þjálfa félagslið og landslið þegar kemur að slíkum breytingum.

„Það er mesta áskorunin fyrir Arnar að í fyrsta lagi getur hann ekki valið sína leikmenn og öðru lagi eru meiðsli alltaf að fara koma inn í þetta.“

Hann gagnrýndi einnig uppspil Íslands gegn Eistum og sagði miðjumennina hafa farið of neðarlega á völlinn, sem hefði komið í veg fyrir að liðið næði upp hraða í sóknarleiknum.

Jóhann telur að Ísland hafi áður fundið árangursríka leið til að komast á stórmót en nú sé verið að fara aðra leið.

„Það er búið að gefa okkur þetta 'blueprint' hvernig á að komast á stórmót, en við erum ekki á þeirri vegferð núna.“

Hann segir tímann ekki vinna með íslenska liðinu.

„Það mun taka langan tíma en við höfum ekki langan tíma til að komast á þetta Evrópumót,“ sagði Jóhann.