Cristiano Ronaldo hefur verið úrskurðaður tímabundið í bann frá portúgalska landsliðinu eftir að hafa yfirgefið landsliðshópinn í kjölfar deilna við Jorge Jesus, landsliðsþjálfara Portúgals, en þetta var að staðfest fyrir skömmu.
Ronaldo, sem er 41 árs, yfirgaf landsliðshópinn eftir að hafa setið allan tímann á varamannabekknum gegn Noregi í Þjóðadeildinni í lok september. Hann heldur því fram að Jesus hafi lofað honum að spila í 30 mínútur en ekki staðið við það.
Samkvæmt reglum portúgalska knattspyrnusambandsins leiðir slík háttsemi sjálfkrafa til banns. Aganefnd sambandsins á nú eftir að ákveða lengd þess, en það gæti orðið allt frá einum upp í sex mánuði.
Verði bannið lengra en einn mánuður missir Ronaldo af leikjum Portúgals gegn Danmörku og Wales í nóvember. Samkvæmt ESPN þykir þó afar ólíklegt að hann fái langt bann.
Ronaldo hefur beðist afsökunar á því að hafa yfirgefið hópinn en stendur enn við gagnrýni sína á Jesus. Hann hefur jafnframt tekið skýrt fram að hann sé ekki hættur með landsliðinu og vilji snúa aftur þegar banninu lýkur.