Real Madrid hefur áhuga á Scott McTominay, miðjumanni Napoli, og hefur sett sig í samband við fulltrúa hans, ef marka má ítalska miðla.
McTominay, sem er 29 ára gamall, hefur slegið í gegn á Ítalíu síðan hann gekk til liðs við Napoli frá Manchester United sumarið 2024. Hann varð ítalskur meistari á sinni fyrstu leiktíð og var valinn besti leikmaður deildarinnar.
Skotinn er samningsbundinn Napoli til ársins 2028 en viðræður um framlengingu hafa ekki skilað árangri. Napoli vill halda honum en samningsstaðan hefur vakið áhuga Real Madrid og nokkurra félaga í ensku úrvalsdeildinni.
Hjá Real Madrid myndi McTominay hitta aftur fyrir Jose Mourinho, sem gaf honum tækifæri hjá Manchester United á sínum tíma. Mourinho hefur alla tíð verið mikill aðdáandi Skotans og þeir eru enn í sambandi.
Napoli vill alls ekki missa McTominay í janúar en gæti þurft að íhuga sölu næsta sumar ef ekki tekst að semja við hann.