Helgi Fannar Sigurðsson og Hörður Snævar Jónsson fóru yfir sviðið í Íþróttavikunni á 433.is.
Aron Einar Gunnarsson mun ekki bæta landsleikjametið. Þetta varð ljóst þegar hann kom aðeins við sögu í einum af fjórum leikjum Íslands í landsleikjaglugganum sem var að klárast.
Aron hafði tilkynnt að hann myndi hætta eftir Þjóðadeildina í haust. Það eru aðeins tveir leikir eftir þar og getur hann því í mesta lagi jafnað metið.
„Hann bætir ekki metið nema að hann hendi sér í eitt janúar-verkefni, sem ég held reyndar að væri fín lausn,“ grínaðist Helgi og hélt svo áfram.
„Ég hef heyrt talað um að hann hefði átt að koma inn á gegn Eistum en af hverju fær hann ekki fimm mínútur gegn Lúxemborg úti, þar sem við erum með unninn leik?“ spurði hann áður en Hörður tók til máls.
„Það var ótrúlegt að sjá hann ekki koma inn á þar, sérstaklega út af skiptingunum í þeim leik. Það voru einhverjir fjórir leikmenn sem skiptu um stöðu. Punkturinn er bara sá að ef Aron er ekki nógu góður, sem Arnar virðist telja, þá á hann ekki að velja hann. Þessar mínútur geta þá bara nýst einhverjum öðrum.
Mér fannst þetta óvirðing við allt sem Aron Einar hefur gert. Það vita allir hversu mikið Aron vill ná þessu meti. Það hefur haldið í honum krafti í mörg ár. Þegar þetta er svona nálægt hélt ég að hann myndi alltaf koma við sögu í þremur leikjum í þessum glugga svo hann gæti kvatt með stæl í síðasta heimaleiknum gegn Lúxemborg í nóvember.“
Aron var tekinn af velli í hálfleik í eina leiknum sem hann spilaði í landsliðsverkefninu nú.
„Ég tók viðtal við Aron Einar eftir leikinn á móti Búlgaríu, eftir að hann var tekinn af velli í hálfleik. Mér fannst hann virka pirraður ef ég á að segja eins og er,“ sagði Helgi.
„Það er ákveðinn niðurlæging að vera tekinn af velli í hálfleik þegar liðið þitt er að vinna og halda hreinu. Það var skrýtið,“ sagði Hörður.