433

Öll knattspyrnusambönd Afríku styðja Infantino

Mynd
Gianni Infantino, forseti FIFA / Getty Images

Gianni Infantino, forseti FIFA, fær mikinn stuðning frá Afríku fyrir forsetakosningarnar á næsta ári. Öll 54 knattspyrnusambönd álfunnar hafa lýst yfir stuðningi við endurkjör hans.

Infantino ávarpaði fulltrúa sambandanna á ráðstefnu á Grænhöfðaeyjum í gær og lofaði auknum fjárframlögum til afrískrar knattspyrnu. Hann sagði FIFA hafa fjárfest einum milljarði Bandaríkjadala í álfunni á síðustu tíu árum.

Infantino hefur sætt harðri gagnrýni undanfarna mánuði eftir að hann reyndi að selja einkafjárfestum hlut í viðskiptalegum réttindum FIFA, meðal annars tengdum heimsmeistaramótinu. Hætt var við áformin í júlí eftir mikla andstöðu, einkum frá Evrópu og Norður-Ameríku.

Nokkur knattspyrnusambönd hafa síðan dregið stuðning sinn við Infantino til baka en Afríka stendur þétt við bakið á honum. Patrice Motsepe, forseti afríska knattspyrnusambandsins, staðfesti að öll 54 samböndin styðji hann skilyrðislaust.

Forsetakosningar FIFA fara fram í mars á næsta ári og hafa afrísku samböndin rúmlega fjórðung atkvæða. Infantino hefur verið forseti FIFA frá árinu 2016.