433

Nokkur áföll í herbúðum United - Carrick tjáir sig um meiðsli lykilmanna

Mynd
Getty Images

Michael Carrick, knattspyrnustjóri Manchester United, hefur staðfest að Patrick Dorgu verði frá keppni næstu vikurnar vegna meiðsla. Þá ríkir óvissa um þátttöku nokkurra annarra leikmanna liðsins fyrir næsta verkefni í ensku úrvalsdeildinni.

Carrick fór yfir stöðuna á leikmannahópnum eftir landsleikjahléið og sagði tíðindin misjöfn.

„Staðan er svolítið misjöfn eftir landsleikina. Patrick þurfti að fara af velli og það lítur út fyrir að hann verði frá í nokkrar vikur,“ sagði Carrick.

Noussair Mazraoui varð einnig fyrir hnjaski og er ekki búinn að jafna sig að fullu.

Betri tíðindi bárust hins vegar af Carlos Baleba, sem hefur æft mikið að undanförnu og er á batavegi.

Þá hafa Amad Diallo, Marcus Rashford og Kobbie Mainoo allir tekið þátt í einhverjum æfingum en óljóst er hvenær þeir verða klárir í slaginn.

Carrick staðfesti jafnframt að Benjamin Sesko væri enn nokkuð frá því að snúa aftur á völlinn.

„Benjamin er aðeins lengra frá því að vera tilbúinn vegna þeirra meiðsla sem hann glímir við,“ sagði Carrick.