Meira en helmingur þeirra leikmanna, þjálfara og starfsmanna sem FIFA fylgdist með á samfélagsmiðlum á HM karla vestanhafs í sumar varð fyrir netníði á meðan mótinu stóð.
Alls var fylgst með 1606 einstaklingum á meðan mótinu stóð og fengu 812 þeirra að minnsta kosti ein skilaboð sem flokkuðust sem níð eða áreitni.
Kynþáttafordómar voru algengasta tegund netníðs, um 12 prósent. Sá einstaklingur sem varð fyrir mestri áreitni fékk meira en tíu þúsund niðrandi skilaboð og flokkast 40 prósent þeirra undir kynþáttaníð.