433

Lárus undrandi á viðbrögðum KSÍ - „Upplýsa um hversu alvarlegt brotið var og hverjir vor hinir brotlegu“

Mynd

Lárus Guðmundsson, fyrrum atvinnu- og landsliðsmaður í knattspyrnu, er afar ósáttur við viðbrögð Knattspyrnusambands Íslands vegna meintra agabrota leikmanna íslenska landsliðsins í síðasta landsliðsglugga. Hann segir að sambærileg hegðun hefði aldrei verið liðin undir stjórn Lars Lagerbäck og Heimis Hallgrímssonar.

Eins og greint hefur verið frá fóru nokkrir leikmenn íslenska landsliðsins út að skemmta sér eftir leikinn gegn Búlgaríu, þremur dögum fyrir mikilvægan leik gegn Eistlandi í Þjóðadeildinni.

Lárus skrifaði harðorða færslu á Facebook þar sem hann gagnrýndi bæði hegðun leikmannanna og viðbrögð KSÍ.

„Nú er mér öllum lokið!“ skrifaði Lárus og hélt áfram.

„Orðrómur um drykkju einhverra landsliðsmanna eftir leikinn á móti Búlgaríu og 3. dögum fyrir leikinn mikilvæga gegn Eistum. Virðist staðfestur af hálfu framkvæmdastjóra KSÍ Eysteini Lárussyni.“

Lárus er sérstaklega ósáttur við að málið virðist hafa verið afgreitt án frekari afleiðinga fyrir leikmennina.

„Sem jafnframt lýsir því að eftir samtal við hlutaðeigandi sé málinu lokið og bara áfram gakk. Sem sagt án afleiðinga fyrir brothafa?“

Hann rifjar upp tíma íslenska landsliðsins undir stjórn Lars Lagerbäck og Heimis Hallgrímssonar og fullyrðir að agabrot af þessu tagi hefðu ekki verið liðin þá.

„Ég fullyrði að slíkt risa agabrot hefði aldrei verið látið viðgangast á vakt Lars Lagerback og Heimis Hallgrímssonar.“

Lárus segir nauðsynlegt að KSÍ upplýsi þjóðina betur um hvað hafi átt sér stað og grípi til viðeigandi aðgerða.

„KSÍ þarf að gera hreint fyrir sínum dyrum og upplýsa um hversu alvarlegt brotið var og hverjir vor hinir brotlegu.“

Hann lýkur færslunni með skýrum skilaboðum til sambandsins. „Og síðan að grípa til viðeigandi ráðstafana sem eru svo fordæmisgefandi.“