Kristján Óli Sigurðsson, sérfræðingur í Þungavigtinni, er allt annað en sáttur við hegðun þeirra leikmanna íslenska landsliðsins sem gerðust sekir um agabrot í síðasta landsliðsglugga. Hann segir leikmennina hafa brugðist liðsfélögum sínum, þjálfaranum og íslensku þjóðinni.
Greint hefur verið frá því að nokkrir landsliðsmenn hafi farið á pókerklúbb eftir leik Íslands gegn Búlgaríu síðasta laugardag. Í kjölfarið hafi þeir ekki verið í nægilega góðu ástandi á æfingu daginn eftir.
Kristján Óli ræddi málið í Þungavigtinni og var harðorður í garð leikmannanna.
„Menn mættu ekki í standi á æfingu á sunnudagsmorgni, það er vandamálið.“
Hann segir að fjórir til fimm leikmenn hafi verið viðriðnir málið og að þeir þurfi að axla ábyrgð.
„Þeir verða að eiga þetta við sjálfa sig, þeir eru meðal annars að bregðast liðsfélögunum. Gylfi Sig er að spila rifbeinsbrotinn í Eistlandi. Hversu pirraður heldur þú að hann hafi verið þegar hann frétti af þessu?“
Kristján bendir einnig á að stuðningsmenn landsliðsins leggi mikið á sig til að fylgjast með liðinu. Hann segir menn hafa byrjað gegn Eistlandi sem voru að fá sér í glas á laugardegi, leikurinn var á þriðjudegi.
„Svo bregðast þeir þjóðinni endanlega með því að gera þetta skítajafntefli við Eista. Frammistaðan inni á vellinum var ömurleg.“
Hann telur hegðunina sýna Arnari Gunnlaugssyni landsliðsþjálfara mikla óvirðingu.
„Þeir bera enga virðingu fyrir Arnari, þeim er drullusama og hlýða ekki. Ég hefði aldrei séð þetta gerast undir Lars eða Heimi.“
Eins og greint var frá í gær var fundað hjá KSÍ vegna agabrota leikmanna í landsliðsglugganum. Kristján segir áhugavert að sjá hvaða ákvarðanir Arnar tekur þegar hann velur næsta landsliðshóp í nóvember.