433

Ísland svo gott sem komið áfram eftir þægilegan sigur - Systurnar allt í öllu

Mynd
Mynd: KSÍ

Íslenska kvennalandsliðið vann sannfærandi sigur á Króatíu í fyrri leik liðanna ytra í undanúrslitum umspilsins um sæti á HM næsta sumar.

Stelpurnar okkar þóttu mun sigurstranglegri en þær þurftu að sýna þolinmæði á köflum í kvöld. Arna Eiríksdóttir kom Íslandi yfir á 13. mínútu með marki sem kom eftir langt innkast og var það eina mark fyrri hálfleiks.

Fyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir tvöfaldaði forskotið með marki af vítapunktinum um miðbik seinni hálfleiks. Hlín Eiríksdóttir, systir Örnu, skoraði svo þriðja mark Íslands áður en Arna skoraði aftur undir lokin.

Íslenska liðið var miklu betra í kvöld, en Cecilía Rán Rúnarsdóttir varði þó vel úr einu færi heimakvenna. 

Lokatölur 0-4. Seinni leikurinn fer fram á Laugardalsvelli á þriðjudag. Þar verður forgangsatriði fyrir íslenska liðið að tryggja sér farseðilinn í úrslit umspilsins, þar sem má búast við að Portúgal verði andstæðingurinn.