433

Gunni Birgis tekur upp hanskann fyrir landsliðsmenn og meint agabrot - „Áttu þeir að vera í Trivial Pursuit uppi á herbergi?“

Mynd

Gunnar Birgisson telur að verið sé að gera of mikið úr meintri drykkju leikmanna íslenska landsliðsins í síðasta landsliðsglugga. Gunnar segist sjálfur hafa verið á staðnum þar sem leikmennirnir voru og ekki orðið var við neina óeðlilega hegðun.

Mikil umræða hefur skapast um hegðun nokkurra landsliðsmanna sem fóru út að skemmta sér eftir leik Íslands gegn Búlgaríu, þremur dögum fyrir leikinn gegn Eistlandi í Þjóðadeildinni.

Málið hefur vakið hörð viðbrögð og hafa nokkrir gagnrýnt leikmennina fyrir skort á aga og fagmennsku.

Gunnar Birgisson sér málið hins vegar í öðru ljósi en margir aðrir og kom leikmönnunum til varnar í nýjasta þætti Dr. Football. Gunnar hitti þá leikmenn sem eiga að hafa brotið agareglur á pókerstað í miðborg Reykjavíkur síðasta laugardag.

„Ég held að það sé verið að gera mál úr engu, ég var vitni á þessum ágæta stað. Ég gat ekki séð að það væri neitt vesen á þessum drengjum,“ sagði Gunnar.

Hann benti á að leikmennirnir hefðu verið undir miklu álagi í landsliðsglugganum og þyrftu einnig að fá tækifæri til að slaka á.

„Menn voru að komast úr þessari hringiðju sem þeir voru í þessar þrjár vikur, fjórir leikir. Mikið í flugvélum, það var ekki minn skilningur á stöðunni þá að þetta væri eitthvað vesen.“

Gunnar segir stemninguna hafa verið góða á staðnum og telur gagnrýnina óþarfa.

„Menn voru bara í stemmingu, áttu þeir að vera í Trivial Pursuit uppi á herbergi?“

Ummæli Gunnars koma í kjölfar mikillar umræðu um agabrot innan landsliðsins en hann telur ljóst að ekki sé ástæða til að gera jafn mikið úr málinu og raun ber vitni.