433

Finnur til með þessum leikmanni Íslands

Mynd
Getty Images

Helgi Fannar Sigurðsson og Hörður Snævar Jónsson fóru yfir sviðið í Íþróttavikunni á 433/DV.

Það er flestum ljóst að Hákon Arnar Haraldsson, lykilmaður í íslenska landsliðinu, hefur alla burði til að spila á hæsta stigi fótboltans.

Hákon spilar í dag með Lille í sterkri franskri úrvalsdeild en hefur reglulega verið orðaður við enn stærri félög.

„Mér fannst Hákon ljós punktur fyrir utan síðasta leikinn,“ sagði Helgi um landsleikina fjóra sem Ísland spilaði á dögunum.

Hörður tók til máls.

„Já, maður hálf vorkennir honum að vera að fara beint í deildarleik á laugardag og svo er það Arsenal úti í Meistaradeildinni í miðri næstu viku. Það reynir á skrokkinn hans og hann þarf að vera skynsamur í endurheimt.

Hann er búinn að eiga góð ár í Frakklandi. Haldi hann stöðugleika og bæti aðeins í er þetta stóra move handan við hornið. Ég held að hann sé kominn á radarinn hjá ansi mörgum liðum í Englandi, Þýskalandi og Spáni.“