433

Eigendur Everton leita að aðilum til að kaupa félagið

Mynd

Bandaríska fjárfestingarfélagið The Friedkin Group, sem á enska úrvalsdeildarfélagið Everton, hefur staðfest að það sé að skoða möguleikann á að selja félagið, tæpum tveimur árum eftir að það tók við eignarhaldi þess.

The Friedkin Group keypti Everton árið 2024 fyrir rúmlega 400 milljónir punda en nú gætu orðið eigendaskipti á nýjan leik.

Í yfirlýsingu frá eigendunum kemur fram að verið sé að skoða ýmsa fjárfestingarkosti, þar á meðal sölu á ráðandi hlut í félaginu.

„The Friedkin Group er að skoða nýja fjárfestingarkosti fyrir Everton, þar á meðal mögulega sölu á ráðandi hlut,“ segir í yfirlýsingunni.

Eigendurnir segja að þegar þeir tóku við hafi Everton glímt við mikla fjárhagslega óvissu og ýmsar áskoranir innan sem utan vallar.

„Forgangsverkefnið var að tryggja stöðugleika, fjárfestingu og þann stuðning sem þurfti til að tryggja framtíð félagsins.“

Þá leggja þeir áherslu á að opnun nýs heimavallar Everton á síðasta ári hafi verið mikilvægur áfangi.

„Nú þegar sá grunnur er tryggður er rétti tíminn kominn til að skoða næsta kafla í sögu Everton.“