Mikel Arteta, stjóri Arsenal, vildi ekki tjá sig mikið um mál Manchester City þegar eftir því var leitast á fréttamannafundi.
City var fundið sekt í 114 af 115 ákæruliðum vegna brota á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar. Félagið hefur áfrýjað niðurstöðunni og því liggur ekki enn fyrir hver endanleg niðurstaða málsins verður eða hvaða refsingu félagið gæti fengið.
„Ég skil spurninguna fullkomlega en mér finnst mjög mikilvægt að við virðum ferlið og þann tíma sem það tekur. Málinu er ekki lokið þar sem niðurstöðunni hefur verið áfrýjað,“ sagði Arteta á fréttamannafundi í dag.
Arteta þekkir vel til hjá Manchester City en hann var aðstoðarþjálfari Pep Guardiola hjá félaginu áður en hann tók við Arsenal árið 2019.
Arsenal tekur á móti Leeds á morgun og freistar þess að komast aftur á sigurbraut eftir tap gegn Brighton fyrir landsleikjahléið. Manchester City, sem er á toppi deildarinnar, heimsækir Liverpool á sunnudag.