433

Arteta um nýjan samning - „Ég og fjölskylda mín erum afar þakklát“

Mynd
Mikel Arteta, stjóri Arsenal. Getty Images

Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið. Spánverjinn segist afar stoltur af því að halda áfram starfi sínu hjá Lundúnaliðinu og þakklátur fyrir það traust sem honum hefur verið sýnt.

Arteta tók við Arsenal í desember 2019 og hefur nú verið við stjórnvölinn í tæp sjö ár.

„Ég er ótrúlega stoltur. Ég og fjölskylda mín erum afar þakklát fyrir að fá að halda áfram þessu ótrúlega ferðalagi sem hófst fyrir tæpum sjö árum,“ sagði Arteta.

Hann segir að það hafi aldrei verið spurning um hvort báðir aðilar vildu halda samstarfinu áfram.

„Ég hef sagt frá upphafi að félagið og ég vildum það sama. Þegar maður skrifar undir samning er mikilvægast að líta í kringum sig og sjá brosandi andlit og eftirvæntingu í augum fólks.“

Arteta nefndi sérstaklega eigendur félagsins, Stan og Josh Kroenke, ásamt stjórnendum, starfsfólki og leikmönnum.

„Við verðum að vinna okkur inn réttinn á hverjum einasta degi til að vera á þessu stigi,“ sagði Arteta.