433

Arne Slot kominn með nýtt starf

Mynd
Getty Images

Arne Slot, fyrrverandi stjóri Liverpool, hefur verið ráðinn í starf hjá UEFA, fjórum mánuðum eftir að honum var sagt upp hjá enska félaginu.

Slot hefur verið ráðinn í hóp sérfræðinga sem fylgjast með og greina leiki í Evrópukeppnum. Hópurinn sér meðal annars um að velja mann leiksins í Meistaradeildinni og kemur að vali á liði ársins, leikmanni ársins og marki ársins.

Hollendingurinn var rekinn frá Liverpool í sumar eftir að liðið hafnaði í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar, ári eftir að hann gerði það að Englandsmeisturum. Andoni Iraola tók við liðinu.

Slot hafði verið orðaður við landslið Hollands og Fulham en hefur verið án starfs síðan hann yfirgaf Liverpool.

Fleiri þekktir þjálfarar hafa fengið sambærilegt hlutverk hjá UEFA, þar á meðal Erik ten Hag, Rafael Benitez, Ole Gunnar Solskjaer, Thomas Frank og Sean Dyche.