433

Arnar Gunnlaugs ætlar ekki tjá sig um meint agabrot landsliðsmanna

Mynd

Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, hefur fengið boð frá íþróttadeild Sýnar um að ræða meint agabrot leikmanna íslenska karlalandsliðsins í síðasta landsliðsglugga. Hann hefur hins vegar ákveðið að tjá sig ekki um málið að svo stöddu.

Þetta kom fram í þættinum Besta sætinu í dag þar sem agabrot landsliðsmannanna voru til umræðu.

Mikil umræða hefur skapast um hegðun nokkurra leikmanna sem fóru út að skemmta sér eftir leikinn gegn Búlgaríu, skömmu fyrir viðureignina gegn Eistlandi í Þjóðadeildinni.

KSÍ hefur lítið tjáð sig um málið en samkvæmt þeim upplýsingum sem komið hafa frá sambandinu hefur verið tekið á því og virðast engar frekari afleiðingar verða fyrir viðkomandi leikmenn.

Íþróttadeild Sýnar bauð Arnari að koma og ræða málið en hann hefur ekki hug á því eins og staðan er núna.

Hvort landsliðsþjálfarinn muni síðar stíga fram og útskýra sína hlið á málinu á eftir að koma í ljós.