Helgi Fannar Sigurðsson og Hörður Snævar Jónsson fóru yfir sviðið í Íþróttavikunni á 433/DV.
Valur og Víkingur féllu úr Bestu deild kvenna á dögunum. Þetta eru í raun ótrúleg tíðindi, Valur hefur aldrei fallið áður og Víkingi var spáð góðu gengi í sumar.
„Þetta er mjög stórt í sögulegu samhengi, en menn eru hvergi af baki dottnir á Hlíðarenda,“ sagði Helgi áður en Hörður tók til máls.
„Menn eru stórir þar. Það voru miklar breytingar fyrir tímabil og kynslóðaskiptin urði hraðari en menn áttu von á. Svo verða tveir lykilmenn ófrískar fyrir mót og detta út. Það var kannski of stór biti.
Það var kannski meira lagt í lið Víkings og það betur mannað. Það kemur svakalega á óvart að þessi tvö lið endi niðri.“
Svo voru nýliðarnir helvíti sterkir í ár. ÍBV endar ofarlega og Grindavík/Njarðvík fór í efri hlutann og bikarúrslit. Það kom kannski einhverjum á óvart,“ sagði hann.