433

Vonast til að vera á lífi þegar nýr heimavöllur félagsins opnar

Mynd
Getty Images

Sir Alex Ferguson, fyrrverandi knattspyrnustjóri Manchester United, vonast til þess að lifa nógu lengi til að verða viðstaddur opnun nýs heimavallar félagsins.

United hefur áform um að byggja nýjan leikvang sem tekur 100 þúsund áhorfendur og leysa þannig hinn sögufræga Old Trafford af hólmi.

Upphaflega stóð til að völlurinn yrði tilbúinn árið 2030 en þau áform hafa breyst og engin ákveðin dagsetning liggur nú fyrir.

Ferguson, sem er 84 ára gamall, fjallar um fyrirhugaða framkvæmd í nýrri bók sinni, Games of My Life.

„Ég fór að velta því fyrir mér hvort ég yrði enn á lífi þegar völlurinn verður vígður,“ skrifar Skotinn.

„Ég vona að framkvæmdir hefjist fljótlega því ef það tekur fimm ár að byggja völlinn verð ég að nálgast nírætt.“

„Ég veit þó að ég verð viðstaddur opnunina með einum eða öðrum hætti, annaðhvort í eigin persónu eða í anda.“

Ferguson stýrði Manchester United frá 1986 til 2013 og vann meðal annars 13 Englandsmeistaratitla með félaginu.

Hann hefur verið fastagestur á Old Trafford eftir að hann lét af störfum en hefur glímt við ýmis heilsufarsvandamál undanfarin ár.

Ferguson fékk meðal annars heilablæðingu árið 2018 og hefur síðan þurft að glíma við frekari veikindi.

Ný bók Skotans kemur út í dag.