Stuðningsmenn Arsenal gætu lent í miklum samgönguvandræðum þegar liðið tekur á móti Leeds United í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn. Neðanjarðarlestarstöð í nágrenni Emirates-leikvangsins hefur verið lokað vegna ótta um að hún sé að sökkva.
Um er að ræða Arsenal-neðanjarðarlestarstöðina sem er á Piccadilly-línunni í Lundúnum.
Samkvæmt The Sun hefur samgöngufyrirtækið Transport for London staðfest að stöðinni hafi verið lokað vegna skemmda á innviðum hennar. Breskir fjölmiðlar greina frá áhyggjum um að stöðin sé að síga.
Lokunin gæti staðið fram yfir helgi og jafnvel fram í næstu viku.
„Starfsfólk okkar vinnur allan sólarhringinn að því að gera við skemmdirnar eins fljótt og auðið er,“ sagði Richard Jones, yfirmaður hjá neðanjarðarlestarkerfi Lundúna.
Stuðningsmenn Arsenal eru hvattir til að skipuleggja ferðir sínar tímanlega fyrir leikinn gegn Leeds sem hefst klukkan 12:30 að breskum tíma á laugardag.
Bent hefur verið á að hægt sé að nota aðrar nálægar stöðvar, meðal annars Finsbury Park, Highbury & Islington og Holloway Road.
Óvíst er hvenær Arsenal-stöðin verður opnuð á ný.