Jose Mourinho hefur ekki tekist að bæta andrúmsloftið í herbúðum Real Madrid eftir að hann tók aftur við þjálfun liðsins í sumar.
Samkvæmt spænska útvarpsmiðlinum Cadena SER er mikil spenna enn til staðar í leikmannahópnum og hafa tveir leikmenn nýlega lent í handalögmálum í búningsklefanum.
Mikill órói einkenndi síðasta tímabil hjá Real Madrid og meðal annars lentu Federico Valverde og Aurelien Tchouameni í átökum í maí.
„Andrúmsloftið í búningsklefanum er enn jafn ískalt og fyrir fimm mánuðum. Ekki einu sinni ákefð Mourinho hefur náð að breyta því,“ sagði blaðamaðurinn Anton Meana.
Mourinho er einnig sagður ósáttur við Kylian Mbappé, sem nýlega meiddist á hné í landsleikjahléinu.
Frakkinn vakti athygli þegar hann heimsótti næturklúbb í París og fór í hjólaferð um svissnesku Alpana á meðan hann var að jafna sig.
Mourinho hefur áður gagnrýnt slíka áhættuhegðun knattspyrnumanna og er sagður hafa tekið Mbappé á teppið þegar hann sneri aftur til Madrídar.
Real Madrid hefur unnið fimm af fyrstu sjö leikjum sínum í spænsku úrvalsdeildinni en er sex stigum á eftir Barcelona.
Liðið mætir Villarreal á heimavelli á laugardaginn áður en það heimsækir Roma í Meistaradeildinni í næstu viku.