Anthony Gordon, leikmaður Barcelona, hefur vakið athygli með ummælum sínum um Pedri, liðsfélaga sinn hjá spænska stórveldinu.
Gordon gekk til liðs við Barcelona frá Newcastle í sumar fyrir 70 milljónir punda og hefur farið frábærlega af stað. Hann hefur lagt upp fimm mörk í fyrstu sex leikjum sínum í spænsku úrvalsdeildinni.
Í viðtali við Sport hrósaði Gordon spænska miðjumanninum Pedri og virtist um leið senda fyrrum samherjum sínum hjá Newcastle óbeina sneið.
„Ég hef tekið ótal hlaup á ferlinum sem enginn tók eftir. Nú er ég hins vegar með Pedri, sem sér nákvæmlega allt,“ sagði Gordon.
Englendingurinn segir að aðlögunin hjá Barcelona hafi gengið vel enda sé leikstíllinn ekki ósvipaður þeim sem Newcastle spilaði.
„Núna er ég umkringdur nokkrum af bestu knattspyrnumönnum heims,“ bætti hann við.
Gordon segist jafnframt vilja að núverandi lið Barcelona verði minnst um ókomna tíð, líkt og stórlið Pep Guardiola sem vann Meistaradeildina með Xavi og Andrés Iniesta innanborðs á sínum tíma.