433

Segir útilokað að hægt sé að taka af sér titlana

Mynd
Getty Images

Kyle Walker, fyrrverandi leikmaður Manchester City, segir að enginn geti tekið af leikmönnum félagsins þær minningar sem þeir sköpuðu með því að vinna fjölda titla á undanförnum árum.

Manchester City hefur verið fundið sekt um meira en 100 brot á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar en félagið hefur áfrýjað niðurstöðunni.

Enn hefur ekki verið ákveðið hvaða refsingu City fær en mögulegt er að félagið verði sektað, fái stigafrádrátt eða verði jafnvel vísað úr deildinni. Þá hefur einnig verið rætt um mögulega sviptingu titla.

Walker, sem vann sex Englandsmeistaratitla og Meistaradeildina með City, tjáði sig um málið í samtali við talkSPORT.

„Þetta lítur augljóslega ekki vel út. Málið er hins vegar í áfrýjunarferli og ég ætla ekki að tjá mig um lagalegu hliðina,“ sagði Walker.

„Við strákarnir áttum mörg frábær ár saman og fögnuðum ótal titlum. Hvað sem gerist geta þeir aldrei tekið þessar stundir frá okkur. Við upplifðum þær.“

Walker gekk til liðs við City frá Tottenham árið 2017 fyrir 50 milljónir punda og yfirgaf félagið á síðasta ári.

Hinn 36 ára gamli varnarmaður leikur nú með Burnley.