433

Rosaleg sekt fyrir að falsa bólusetningarvottorð fyrir Covid-19 - Þarf að borga rúmar 20 milljónir

Mynd
Granit Xhaka. Mynd/Instagram

Granit Xhaka, fyrirliði Sunderland og svissneska landsliðsins, hefur verið dæmdur fyrir að verða sér úti um falsað bólusetningarvottorð gegn kórónuveirunni árið 2022, þegar hann lék með Arsenal.

Xhaka játaði að hafa haft mikið vantraust á bóluefninu og ekki farið réttar leiðir til að afla sér vottorðsins.

Svissnesk yfirvöld rannsökuðu málið en Xhaka átti yfir höfði sér allt að fimm ára fangelsisdóm.

Hann slapp hins vegar við fangelsisvist og fékk í staðinn skilorðsbundna sekt upp á 150 þúsund svissneska franka, jafnvirði rúmlega 22 milljóna íslenskra króna. Skilorðstíminn er tvö ár.

Vottorðið var dagsett 11. nóvember 2022, en sama dag var Xhaka við æfingar hjá Arsenal í Lundúnum. Daginn eftir lék hann með liðinu gegn Wolves í ensku úrvalsdeildinni.

Xhaka greindi sjálfur frá niðurstöðunni á Instagram og sagðist taka fulla ábyrgð á gjörðum sínum.

„Ég sætti mig við niðurstöðuna og tek ábyrgð,“ skrifaði Svisslendingurinn, sem þakkaði jafnframt fyrir stuðninginn sem hann hefur fengið undanfarnar vikur.