433

Opnar sig um njósnahneykslið - „Svona mál breytir lífinu“

Mynd

Tonda Eckert, knattspyrnustjóri Southampton, segir njósnahneykslið sem skók félagið á síðustu leiktíð hafa breytt lífi sínu. Þjóðverjinn hefur verið sektaður um 28 þúsund pund og hlotið sex vikna skilorðsbundið bann vegna málsins.

Southampton var vísað úr umspili um sæti í ensku úrvalsdeildinni í maí eftir að félagið viðurkenndi að hafa njósnað um æfingar Oxford United, Ipswich Town og Middlesbrough.

Enska knattspyrnusambandið fór fram á þriggja mánaða bann yfir Eckert en sjálfstæð aganefnd ákvað að milda refsinguna, meðal annars vegna iðrunar hans.

„Þetta hefur verið erfitt. Svona mál breytir lífi manns. Ég væri að ljúga ef ég segði að þetta hefði allt verið auðvelt,“ sagði Eckert á blaðamannafundi.

Eckert, sem er 33 ára, hélt starfi sínu þrátt fyrir rannsókn sem stóð yfir í meira en fjóra mánuði.

„Ég er þakklátur félaginu og fólkinu sem stendur mér næst fyrir að hjálpa mér í gegnum erfiða tíma. Nú getum við loksins sett punkt við þetta mál.“

Eckert segir mikilvægt að einbeita sér að framtíðinni og árangri liðsins.

Southampton mætir erkifjendunum í Portsmouth á sunnudaginn og verður það fyrsti leikur liðsins eftir niðurstöðu aganefndarinnar.

Enska knattspyrnusambandið hefur ekki ákveðið hvort niðurstöðunni verði áfrýjað.