433

Opnar dyrnar fyrir Harry Kane til Bandaríkjanna

Mynd
Getty Images

Don Garber, framkvæmdastjóri bandarísku MLS-deildarinnar, vonast til að Harry Kane, framherji Bayern München og fyrirliði enska landsliðsins, muni feta í fótspor Lionel Messi og ganga til liðs við félag í Bandaríkjunum.

Kane, sem er 33 ára, hefur sjálfur lýst yfir áhuga á að spila í MLS síðar á ferlinum. Englendingurinn hefur verið í stórkostlegu formi og skorað 73 mörk fyrir félagslið og landslið á tímabilinu.

„Ég myndi elska að sjá hann gera það. Okkar draumur var að byggja upp alvöru knattspyrnudeild sem myndi laða að leikmenn á borð við Harry Kane. Messi sýndi að það væri hægt,“ sagði Garber.

Hann hrósaði einnig David Beckham fyrir þátt hans í uppbyggingu deildarinnar.

„David kom deildinni á kortið og færði henni trúverðugleika og virðingu. Án hans væri MLS líklega ekki þar sem hún er í dag.“

Garber segir Messi síðan hafa breytt alþjóðlegri ásýnd deildarinnar.

„Án Lionel Messi væri MLS ekki það alþjóðlega fyrirbæri sem hún er orðin.“