Ölvun leikmanna íslenska karlalandsliðsins í fótbolta eftir leik liðsins gegn Búlgaríu hefur vakið athygli, enda voru aðeins örfáir dagar í næsta verkefni liðsins, leik gegn Eistlandi á þriðjudag.
Málið hefur verið tekið fyrir innan landsliðsins og segir Knattspyrnusamband Íslands (KSÍ) að það sé nú afgreitt.
Kristján Óli Sigurðsson greindi frá því á samfélagsmiðlinum X að fjallað yrði ítarlega um drykkju landsliðsmanna í hlaðvarpinu Þungavigtinni á morgun.
„Fyllerí landsliðsmanna eftir leikinn gegn Búlgaríu verður krufið í þaula í Þungavigtinni í fyrramálið," skrifaði Kristján.
Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmdastjóri KSÍ, staðfestir í samtali við Fótbolta.net að sambandið viti af málinu og að rætt hafi verið við leikmenn vegna þess.
„Við vitum af þessu. Það hefur verið rætt við leikmennina og hópinn, og leikmannahópurinn hefur líka rætt saman. Af okkar hálfu er málið afgreitt og það verða engir eftirmálar,“ segir Eysteinn við Fótbolta.net.
Málið vekur spurningar um undirbúning landsliðsins fyrir leikinn gegn Eistlandi, enda stutt á milli landsleikjanna og mikilvægt að leikmenn séu í sem bestu líkamlegu ástandi.
Af orðum framkvæmdastjóra KSÍ má þó ráða að sambandið telji ekki ástæðu til frekari aðgerða vegna málsins.
Ekki liggur fyrir hversu margir leikmenn áttu hlut að máli eða hversu umfangsmikil drykkjan var.
Fyllerí landsliðsmanna eftir leikinn geng Búlgaríu verður krufið í þaula í Þungavigtinni í fyrramálið. 🍷🥂🍾🍺🥃🍸 #HeimavinnaHöfðingjans
— Kristján Óli Sigurðsson (@kristjanoli) October 8, 2026