Pedro Rodriguez, fyrrverandi leikmaður Barcelona og Chelsea, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir 20 ára feril. Hann er 39 ára gamall.
Pedro varð heimsmeistari með Spáni árið 2010 og Evrópumeistari tveimur árum síðar. Hann vann alls 25 stóra titla á ferlinum, þar af 20 með Barcelona.
Spánverjinn lék stórt hlutverk hjá Barcelona undir stjórn Pep Guardiola og skoraði meðal annars í 3-1 sigri á Manchester United í úrslitaleik Meistaradeildarinnar árið 2011.
Pedro gekk til liðs við Chelsea árið 2015 og varð Englandsmeistari með liðinu. Hann lék síðar með Roma og Lazio, þar sem hann var síðustu fimm árin en samningur hans rann út í sumar.
„Mér finnst tíminn kominn til að hefja nýjan kafla í lífinu. Ég kveð stoltur eftir að hafa lifað drauminn minn,“ segir Pedro, sem lék 65 landsleiki fyrir Spán og skoraði 17 mörk.