433

Kveðjum rignir yfir Jóhann Berg eftir tíðindi dagsins - Ástarkveðja frá Bruno vekur athygli

Mynd

Það hefur rignt inn kveðjum til Jóhanns Bergs Guðmundssonar eftir að hann tilkynnti í dag að hann væri búinn að leggja knattspyrnuskóna á hilluna. Fjölmargir núverandi og fyrrverandi samherjar hafa óskað honum til hamingju með ferilinn og þar á meðal er Bruno Fernandes, fyrirliði Manchester United.

Jóhann Berg tilkynnti í dag að hann hefði ákveðið að láta staðar numið eftir rúmlega 18 ára atvinnumannaferil. Hann birti hjartnæma yfirlýsingu á samfélagsmiðlum þar sem hann þakkaði meðal annars fjölskyldu sinni, samherjum og stuðningsmönnum fyrir samfylgdina.

„Takk fyrir allt, fótbolti. Þetta var draumur – og ég fékk að lifa hann,“ skrifaði Jóhann Berg við færsluna.

Ein athyglisverðasta kveðjan kom frá Bruno Fernandes, fyrirliða Manchester United og portúgalska landsliðsins, sem deildi færslu Jóhanns Bergs í Instagram-sögu sinni.

Fernandes merkti Jóhann Berg við færsluna og lét stórt rautt hjarta fylgja með. Portúgalinn sýndi Íslendingnum þannig hlýhug við þessi tímamót á ferlinum.

Mynd

Landsliðsfélagarnir þakka fyrir sig

Fyrrverandi samherjar Jóhanns Bergs í íslenska landsliðinu létu sitt ekki eftir liggja.

„Til hamingju með geggjaðan feril Big Berg!“ skrifaði Sverrir Ingi Ingason.

Rúrik Gíslason tók í sama streng.

„Geggjaður…! Innilega til hamingju með ferilinn. Getur verið einstaklega stoltur,“ skrifaði Rúrik.

Mynd
Getty Images

Alfreð Finnbogason, sem lék lengi með Jóhanni Berg í landsliðinu, rifjaði upp góðar stundir þeirra saman.

„Til hamingju með geggjaðan feril roomie❤️ og takk fyrir minningarnar saman 💙🤍💚.“

Yngri kynslóð landsliðsmanna sendi Jóhanni Berg einnig hlýjar kveðjur.

„Takk fyrir þig Big Berg💙,“ skrifaði Hákon Arnar Haraldsson.

Orri Steinn Óskarsson þakkaði honum sömuleiðis fyrir samfylgdina. „Til hamingju með glæsilegan feril vinur minn❤️ takk fyrir allt🙌🏼🙏🏼.“

Fyrrverandi samherjar á Englandi taka undir

Það voru ekki aðeins íslenskir knattspyrnumenn sem sendu Jóhanni Berg kveðjur.

James Tarkowski, leikmaður Everton og fyrrverandi samherji Jóhanns Bergs hjá Burnley, óskaði honum velfarnaðar.

„Til hamingju JGB! Gangi þér vel í því sem tekur við,“ skrifaði Tarkowski.

Mynd
Getty Images

James Trafford, enski markvörðurinn, skrifaði einfaldlega:

„Einstakur náungi ❤️.“

Nathan Redmond, sem lék með Jóhanni Berg hjá Burnley, sagði að hann mætti vera stoltur af ferlinum.

„Til hamingju með feril sem þú getur verið stoltur af, félagi. Allt það besta,“ skrifaði Redmond.

Aaron Lennon, fyrrverandi leikmaður Tottenham og enska landsliðsins, sendi einnig hlýja kveðju.

„Til hamingju félagi, frábær ferill. Njóttu þess sem tekur við. Þvílíkur náungi ❤️👊🏽🙌🏽.“

Belginn Steven Defour, sem lék með Jóhanni Berg hjá Burnley, var sömuleiðis meðal þeirra sem skrifuðu undir færsluna.

„Þvílíkur leikmaður. Til hamingju með ferilinn, félagi 👏👏👏.“

Jóhann Berg lék alls 102 A-landsleiki fyrir Ísland og tók þátt í bæði Evrópumótinu 2016 og heimsmeistaramótinu 2018. Hann lék meðal annars með AZ Alkmaar, Charlton Athletic og Burnley á löngum atvinnumannaferli sínum.

Af kveðjunum að dæma er ljóst að Jóhann Berg hefur ekki aðeins skilið eftir sig spor innan vallar heldur einnig eignast fjölda vina á ferlinum.

Jóhann tilkynnti samtímis að hann hefði farið af stað með hlaðvarp um fótbolta sem verður vikulega á dagskrá í allan vetur.