433

Kjaftasögurnar kveðnar í kútinn - Schram skrifar undir nýjan samning á Hlíðarenda

Mynd
Mynd: DV/KSJ

Knattspyrnudeild Vals hefur endursamið við markvörðinn Frederik Schram sem verður leikmaður félagsins til loka tímabils 2029. Núverandi samningur Frederiks átti að renna út eftir næsta tímabil.

Sögusagnir höfðu verið í gangi um að Frederik færi frá félaginu en nú er ljóst að hann verður áfram.

Frederik hefur verið lykilmaður hjá Val frá því hann kom fyrst til félagsins árið 2022. Eftir stutta dvöl hjá Roskilde í byrjun árs 2025 sneri hann aftur heim á Hlíðarenda í apríl sama ár og hefur síðan staðið vaktina í markinu af miklu öryggi.

Frederik á að baki 7 A-landsleiki fyrir Ísland. Hann lék sinn fyrsta landsleik gegn Mexíkó í febrúar 2017 og var í 23 manna hópi Íslands á HM í Rússlandi 2018, einu af stærstu augnablikum í sögu íslenskrar knattspyrnu. Áður hafði hann leikið með U17, U19 og U21 landsliðum Íslands.