433

Haaland tjáir sig um málefni City - „Við verðum að standa saman, sýna hvert öðru kærleika“

Mynd
Getty Images

Erling Haaland, framherji Manchester City, hefur tjáð sig um erfiða stöðu félagsins eftir að það var fundið sekt um umfangsmikil brot á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar. Norðmaðurinn hvetur samherja sína til að standa saman á þessum óvissutímum.

Manchester City var samkvæmt frétt The Sun fundið sekt um 114 brot á fjármálareglum deildarinnar. Félagið hefur áfrýjað niðurstöðunni og á enn yfir höfði sér mögulega harða refsingu, þar á meðal verulegan stigafrádrátt eða jafnvel brottrekstur úr úrvalsdeildinni.

Haaland ræddi stöðuna við Sky Sports fyrir stórleikinn gegn Liverpool á Anfield um helgina.

„Við verðum að standa saman og vera jákvæðir. Sama hvað gerist þurfum við alltaf að brosa, horfa fram á veginn og reyna að vinna fótboltaleiki,“ sagði Haaland.

Norðmaðurinn lagði áherslu á hversu vænt honum þætti um félagið og stuðningsmenn þess.

„Þetta er sérstakur staður fyrir fjölskylduna mína. Mér þykir mjög vænt um stuðningsmennina því ég er sjálfur stuðningsmaður. Ég finn fyrir því sem þeir ganga í gegnum.“

Vangaveltur hafa verið uppi um að Haaland gæti yfirgefið City verði félaginu refsað harðlega.

Hann vildi þó fyrst og fremst leggja áherslu á samstöðuna.

„Við verðum að standa saman, sýna hvert öðru kærleika og njóta ferðalagsins.“

Manchester City hefur ávallt hafnað ásökununum og hyggst halda áfram að berjast fyrir því að hreinsa nafn sitt.