Paul Scholes, fyrrum miðjumaður Manchester United, hefur svarað Martin Keown, fyrrum varnarmanni Arsenal, fullum hálsi eftir að þeir tókust á um mögulegar refsingar Manchester City.
City hefur verið fundið sekt um 114 brot á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar en félagið hefur áfrýjað niðurstöðunni.
Scholes vill að City verði svipt meistaratitlum sínum og að þeir verði afhentir liðunum sem enduðu í öðru sæti.
Manchester United hafnaði meðal annars í öðru sæti á eftir City árið 2012 eftir dramatíska lokaumferð.
„Ég heyri fyrrum samherja mína segja að þeir vilji að titlarnir verði teknir af City en ekki að þeir fái sjálfir medalíurnar. Fjandinn hafi það, ég er gráðugur og vil mína medalíu,“ skrifaði Scholes á Instagram.
Keown er ósammála og telur réttast að ógilda viðkomandi keppnistímabil í stað þess að afhenda öðrum liðum titlana.
„Hversu marga titla þarf hann eiginlega?“ spurði Keown á talkSPORT.
Scholes svaraði um hæl.
„Þú getur farið eitthvert annað með þessa vitleysu um að ógilda tímabil.“
Enn hefur ekki verið tilkynnt um endanlegar refsingar gegn City.