Manchester United, Arsenal, Liverpool og Tottenham fengu að vita niðurstöðuna í máli Manchester City áður en hún var gerð opinber fyrir öðrum félögum ensku úrvalsdeildarinnar.
Ástæðan er sú að félögin fjögur höfðu áður tilkynnt City um fyrirætlanir sínar að leita mögulega eftir skaðabótum vegna meintra brota félagsins á fjármálareglum deildarinnar.
Manchester City var í síðustu viku fundið sekt um meira en 100 brot á reglum úrvalsdeildarinnar, meðal annars vegna meintra ólögmætra styrktarsamninga að andvirði 830 milljóna punda.
City hefur harðneitað sök og þegar áfrýjað niðurstöðunni.
Þá greinir Financial Times frá því að bresk skattayfirvöld hafi hafið rannsókn á fjármálum City árið 2018 í kjölfar leka á tölvupóstsamskiptum félagsins.
Rannsóknin sneri að því hvort félagið hefði greitt of lága skatta með flóknum fjárhagslegum ráðstöfunum.
Engar ásakanir um fjársvik komu fram og skattayfirvöld hafa ekki gripið til aðgerða gegn félaginu. Málinu hefur þó aldrei formlega verið lokað.
Skattasérfræðingurinn Dan Neidle telur mögulegt að City skuldi um 12 milljónir punda vegna greiðslna tengdum Roberto Mancini, fyrrverandi stjóra félagsins.
Amanda Staveley, sem kom að kaupum Sheikh Mansour á City árið 2008, hefur hvatt félagið og úrvalsdeildina til að leysa deiluna með samkomulagi.
Óvissa ríkir enn um mögulegar refsingar City.