433

Beckham fjölskyldan stígur næsta skref - Síðast þegar það var gert græddu þau mikla fjármuni

Mynd
Hjónin Victoria og David Beckham

David Beckham, fyrrverandi fyrirliði enska landsliðsins og leikmaður Manchester United og Real Madrid, er á leiðinni aftur á Netflix eftir gríðarlegar vinsældir heimildarþáttanna um líf hans og feril.

Beckham hefur gert samning um nýtt sjónvarpsverkefni hjá streymisveitunni eftir velgengni fjögurra þátta heimildarseríunnar Beckham sem kom út árið 2023.

Þættirnir fjölluðu meðal annars um uppgang hans hjá Manchester United, samskiptin við Sir Alex Ferguson og flutning hans til Real Madrid.

Jamie Salter, viðskiptafélagi Beckham, staðfesti tíðindin á ráðstefnu á Stamford Bridge.

„David Beckham og Netflix eru að vinna að nýjum þáttum, sem er mjög spennandi. Síðasta þáttaröð hafði gríðarleg áhrif á viðskipti hans,“ sagði Salter.

Eiginkona hans, Victoria Beckham, fékk einnig sína eigin heimildarþáttaröð á Netflix á síðasta ári.

Fyrri þáttaröðin um Beckham sló í gegn og fékk 12,4 milljónir áhorfa á heimsvísu fyrstu vikuna. Þar af horfðu 3,8 milljónir á fyrsta þáttinn í Bretlandi.

Viðskiptaveldi Beckham hefur jafnframt vaxið verulega og hagnaður fyrirtækja hans nam tæpum 50 milljónum punda árið 2025.

Ekki hefur verið tilkynnt hvenær nýja þáttaröðin kemur út eða hvað hún mun fjalla um.