433

Þekktur barnaníðingur trúlofast barnsmóður sinni - Sagðist aldrei ætla að yrða á hann aftur

Mynd

Adam Johnson, fyrrverandi leikmaður Manchester City og Sunderland, er trúlofaður barnsmóður sinni, Stacey Flounders, og parið undirbýr nú brúðkaup. Johnson var dæmdur í sex ára fangelsi árið 2016 fyrir kynferðisbrot gegn 15 ára stúlku.

Hinn 39 ára gamli Johnson afplánaði helming refsingarinnar áður en honum var sleppt úr fangelsi. Stacey sleit sambandinu við hann meðan á réttarhöldunum stóð og sagðist aldrei ætla að taka við honum aftur.

Þau tóku hins vegar saman á ný árið 2020 og eignuðust sitt annað barn ári síðar. Samkvæmt The Sun eru þau nú farin að skipuleggja brúðkaup og fjölskylda þeirra og vinir fagna því.

„Þau hafa gengið í gegnum mikið sem fjölskylda og líta á þetta sem tækifæri til að skilja við erfiða tíma og einbeita sér að framtíðinni með börnunum tveimur,“ segir heimildarmaður breska blaðins.

Johnson hefur ekki spilað fótbolta frá því honum var stungið í steininn fyrir tíu árum. Auk City og Sunderland lék hann með Middlesbrough, Leeds og Watford í enska boltanum, auk þess sem hann á að baki 12 A-landsleiki fyrir Englands hönd.