David Silva, goðsögn Manchester City og fyrrum heimsmeistari með Spáni, hefur ákveðið að snúa aftur í knattspyrnuna rúmum þremur árum eftir að hann lagði skóna á hilluna.
Silva, sem er fertugur, hefur samið við Supreme Sha Tin sem leikur í úrvalsdeildinni í Hong Kong. Félagið staðfesti tíðindin á samfélagsmiðlum.
„Ég er mjög ánægður með að ganga til liðs við Supreme Sha Tin. Ég hlakka mikið til að koma til Hong Kong, kynnast menningunni, fólkinu og auðvitað fótboltanum,“ sagði Silva.
Silva hætti árið 2023 eftir að hafa orðið fyrir alvarlegum hnémeiðslum hjá Real Sociedad. Nú hefur hann hins vegar ákveðið að reima á sig skóna á ný.
Spánverjinn er þekktastur fyrir tíu ára dvöl sína hjá Manchester City. Þar lék hann 436 leiki, skoraði 77 mörk og lagði upp 136.
Hann varð fjórum sinnum Englandsmeistari með City auk þess að vinna tvo FA-bikara og fimm deildabikara.
Silva lék einnig 125 landsleiki fyrir Spán og varð heimsmeistari árið 2010.
Supreme Sha Tin er nýliði í efstu deild Hong Kong og Silva er sagður hafa gert skammtímasamning við félagið.