433

Svona er leið Íslands á HM í fyrsta sinn - Líklegt að örlögin ráðist á Laugardalsvelli í desember

Mynd
Mynd: DV/KSJ

Íslenska kvennalandsliðið hefur leik í umspili um sæti á HM á föstudag. Liðið þarf að vinna tvö einvígi til að komast á lokamótið.

Ísland heimsækir Króatíu í fyrri leik liðanna á föstudag. Seinni leikurinn fer svo fram á þriðjudag hér heima. Sigur í þessu einvígi tryggir úrslitaeinvígi við Portúgal eða Norður-Írland um sæti á HM í Brasilíu næstu sumar.

Mynd
Mynd: DV/KSJ

Ísland er sigurstranglegri aðilinn gegn Króatíu og það sama má segja um Portúgal gegn Norður-Írlandi. Ef allt fer eftir bókinni mætast þessi lið í seinni umferðinni. Fyrri leikurinn færi þá fram í Portúgal í lok nóvember og sá síðari hér heima í byrjun desember, en nákvæmar dagsetningar hafa ekki verið gefnar út fyrir seinni umferðina.

Stelpurnar okkar hafa farið á fimm lokakeppnir EM í röð en hafa aldrei komist á HM. Liðið var þó grátlega nálægt því fyrir mótið árið 2023, en tapaði þá einmitt gegn Portúgal á útivelli í umspilinu. Þá var ekki spilað heima og að heiman.