Íslenska karlalandsliðið fer upp um eitt sæti á nýjum heimslista FIFA, sem kom út í dag.
Ísland hefur spilað fjóra leiki í C-deild Þjóðadeildarinnar með skömmu millibili. Liðið vann tvo, gegn Búlgaríu og Lúxemborg, og gerði tvö jafntefli við Eistland.
Strákarnir okkar voru í 74. sæti fyrir þennan landsleikjaglugga en eru komnir upp í 73. sæti.
Þess má geta að Eistar hoppa upp um fimm sæti og eru nú númer 122, Búlgaría fer niður um fimm og Lúxemborg niður um þrjú, ef horft er til hinna liðanna í okkar riðli.