Lionel Messi gat ekki haldið aftur af tárunum áður en hann lék sinn síðasta landsleik fyrir Argentínu í gærkvöldi. Kveðjuleikurinn sjálfur hefði svo varla getað gengið betur en Messi skoraði og lagði upp tvö mörk í 3-0 sigri gegn Benín.
Messi sást gráta í liðsrútunni á leiðinni á Monumental-leikvanginn þar sem stuðningsmenn fylltu göturnar til að kveðja hann. Hann táraðist aftur þegar þjóðsöngurinn var leikinn fyrir framan 85 þúsund áhorfendur.
🚨 LEO MESSI CRYING IN THE BUS 😭 https://t.co/4VAObDR2Nw
— All About Argentina 🛎🇦🇷 (@AlbicelesteTalk) October 6, 2026
Hinn 39 ára gamli Messi lagði upp fyrsta markið fyrir Nicolas Otamendi og annað fyrir Nico Paz áður en hann skoraði sjálfur úr vítaspyrnu. Það var 126. landsliðsmark hans í 208. og síðasta landsleiknum.
„Það var gríðarlegt stolt að klæðast þessari treyju í meira en tuttugu ár. Ég hætti aldrei að berjast og gaf alltaf allt sem ég átti,“ sagði Messi við stuðningsmennina eftir leik.
Messi scores the hardest thing in his career "penalty"😭❤️ https://t.co/NbWgDEB4w5
— Sutanu Basak (@SutanuBasak) October 7, 2026
Messi sagðist eiga eftir að sakna landsliðsins mikið og myndi nú færa sig yfir í hlutverk stuðningsmanns. „Ég vildi óska þess að ég gæti spilað hér að eilífu því að spila fyrir argentínska landsliðið er það fallegasta í heimi.“
Messi kveður því argentínska landsliðið eftir 21 árs feril, 208 landsleiki og 126 mörk. Hann varð heimsmeistari árið 2022 og vann Copa America tvisvar, auk þess að fara tvisvar til viðbótar í úrslitaleik HM.
LEO MESSI: "Estoy hablando mas que nunca. No me quiero ir de aca" 😭😭😭 https://t.co/VcpyS1EbVs
— LAUCHA | EL RESUMEN (@ElLauchaOkey) October 7, 2026