Hákon Rafn Valdimarsson, landsliðsmarkvörður, var besti leikmaður Íslands í fjögurra leikja landsleikjaglugganum sem nú er lokið.
Elías Rafn Ólafsson hefur verið fyrsti kostur undanfarið en hann meiddist með Midtjylland og gat ekki tekið þátt í leikjunum. Hákon, sem er markvörður Brentford, greip heldur betur tækifærið.
Hann varði víti í fyrsta leiknum gegn Eistlandi og hélt svo hreinu í þremur leikjum í röð. Ísland er á toppi riðils síns í C-deild Þjóðadeildarinnar eftir sigra gegn Lúxemborg og Búlgaríu og tvö jafntefli við Eistland í þessum glugga.
„Hann er bara vel staðsettur og öruggur í öllum sínum aðgerðum. Ef við tölum um að hlutabréfin séu græn í einhverjum þá er það hann,“ sagði Kári Árnason, sérfræðingur Sýn Sport í uppgjöri stöðvarinnar á seinni leiknum við Eistland í gær.
Er hann orðinn aðalmarkvörður landsliðsins?
„Já, 100 prósent. Hann er búinn að taka sinn séns og vera okkar besti maður í þessum glugga,“ sagði Lárus Orri Sigurðsson, sem einnig var í setti Sýn Sport.