Alan Brazil, fyrrum leikmaður Manchester United og núverandi þáttastjórnandi á talkSPORT, segist hafa heyrt að Manchester City gæti fengið 60 stiga frádrátt vegna brota á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar.
City var nýverið fundið sekt um yfir 100 brot og hefur félagið áfrýjað niðurstöðunni. Refsingin hefur ekki verið ákveðin en möguleikarnir eru allt frá sektum yfir í stigafrádrátt eða jafnvel brottrekstur úr deildinni.
„Ég er að heyra 60 stiga frádrátt, sem myndi gleðja suma og samt gefa City möguleika á að halda sér uppi,“ sagði Brazil.
Hann sagðist þó ekki vita hvort slík refsing myndi taka gildi á þessu tímabili eða því næsta.
„Ég sé ekki hvernig það gæti verið á þessu tímabili vegna tímasetningarinnar. En það er talað um 60 stig.“
Brazil bætti við að heimildarmenn hans gætu vissulega verið að fara með rangt mál.
Samstarfsmaður hans, Ally McCoist, taldi hins vegar að 60 stig gætu jafnvel verið of væg refsing ef áfrýjun City mistekst.
City heldur áfram að neita sök og bíður nú niðurstöðu áfrýjunarinnar.