Danny Drinkwater hefur rifjað upp erfiðar samningaviðræður við Sir Alex Ferguson á sínum tíma hjá Manchester United.
Drinkwater, sem nú er hættur knattspyrnuiðkun, var lengi á mála hjá United en náði aldrei að spila aðalliðsleik fyrir félagið. Þegar hann var á táningsaldri þurfti hann sjálfur að semja um atvinnumannasamning sinn þar sem hann var ekki með umboðsmann.
Gary Neville reyndi að hjálpa honum og fór meðal annars tvisvar inn á skrifstofu Ferguson fyrir hans hönd.
„Gaz Nev fór tvisvar inn fyrir mig. Hann náði að hækka þetta um fimm þúsund pund á ári, sem mér fannst ekki sanngjarnt,“ sagði Drinkwater.
Þegar Neville sagði honum að hann væri aðeins að spila með varaliðinu ákvað Drinkwater sjálfur að ræða við Ferguson.
„Ég fór inn til stjórans og hann bara rústaði mér,“ sagði hann.
Drinkwater segir Neville oft hafa hjálpað ungum leikmönnum í sambærilegum aðstæðum, enda var Ferguson þekktur fyrir að vilja sem minnst af afskiptum umboðsmanna.
Drinkwater yfirgaf United árið 2012 og gekk til liðs við Leicester. Þar varð hann Englandsmeistari árið 2016 áður en Chelsea keypti hann fyrir 35 milljónir punda ári síðar.