Aron Einar Gunnarsson mun að öllum líkindum ekki bæta landsleikjamet Birkis Bjarnasonar úr því að hann kom ekki við sögu gegn Eistlandi í gær.
Met Birkis stendur í 113 A-landsleikjum en Aron á 111. Fyrrum landsliðsfyrirliðinn tilkynnti fyrir leikina í Þjóðadeildinni nú í haust að þessi keppni yrði hans síðasta með liðinu.
Aron kom hins vegar aðeins við sögu einum af fjórum leikjum í landsleikjaglugganum sem nú var að ljúka og getur því í mesta lagi jafnað met Birkis í síðustu tveimur leikjunum í Þjóðadeildinni í nóvember.
Eftir leikinn við Búlgaríu hér heima á dögunum sagði Aron við 433.is að hann væri meðvitaður um að landsleikjametið væri í augsýn, án þess að vera of upptekinn að því.
„Ef það gerist þá gerist það. Auðvitað veit maður af því,“ sagði Aron.
Aron mun hins vegar ekki bæta met Birkis nema að honum snúist hugur og ákveði að gefa kost á sér eftir verkefnið í Þjóðadeildinni í næsta mánuði.