433

Með alvarlegt hjartavandamál en sagði aldrei frá því á ferlinum

Mynd

Cheikhou Kouyate hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna, 36 ára gamall, eftir að hafa glímt við hjartavandamál frá fæðingu.

Kouyate, sem lék meðal annars með West Ham, Crystal Palace og Nottingham Forest, segir að vandamálið hafi verið vaktað reglulega á meðan hann spilaði á Englandi.

„Ég hef verið með þetta hjartavandamál frá fæðingu. Ég spilaði með það,“ sagði Kouyate í viðtali við Walf TV í Senegal.

Hann sagði jafnframt að hann hefði tekið áhættuna á eigin ábyrgð og skrifað undir tryggingaskjöl þess efnis.

Kouyate var nálægt því að snúa aftur til Anderlecht í sumar en eftir læknisskoðun ráðlögðu læknar honum að hætta knattspyrnuiðkun.

Hann viðurkenndi einnig að hafa ekki sagt fjölskyldu sinni eða læknum senegalska landsliðsins frá vandamálinu.

Kouyate lék tæplega 300 leiki í ensku úrvalsdeildinni og 92 landsleiki fyrir Senegal.