433

Mál Senegal tekið fyrir í dag - Sviptir titlinum tveimur mánuðum eftir að þeir unnu hann

Mynd
Getty Images

Senegal freistar þess í dag að endurheimta Afríkumeistaratitilinn þegar áfrýjun knattspyrnusambandsins verður tekin fyrir hjá Alþjóðaíþróttadómstólnum, CAS.

Senegal vann Marokkó 1-0 eftir framlengingu í úrslitaleik Afríkukeppninnar í janúar. Tveimur mánuðum síðar var Senegal hins vegar svipt titlinum og Marokkó dæmdur 3-0 sigur.

Ástæðan er að leikmenn Senegal gengu af velli í 14 mínútur í mótmælaskyni eftir að Marokkó fékk vítaspyrnu undir lok venjulegs leiktíma. Þeir sneru síðan aftur út á völl, Marokkó klúðraði vítinu og Senegal skoraði sigurmarkið í framlengingu.

Áfrýjunarnefnd afríska knattspyrnusambandsins taldi Senegal hafa gefið leikinn með því að ganga af velli. Senegal mótmælir þeirri túlkun og telur að það að fara tímabundið af vellinum jafngildi því ekki að gefa leik.

Senegal, Marokkó og afríska knattspyrnusambandið flytja mál sitt fyrir CAS í Lausanne í dag. Ekki liggur fyrir hvenær endanleg niðurstaða verður kynnt.